Ráðgjöf í stjórnun · upplýsingatækni · vörustýringu · dreifingu

Reksturinn á að flæða.

flytr hjálpar íslenskum fyrirtækjum að láta vörur, upplýsingar og fjármuni flæða snurðulaust í gegnum reksturinn — með prófuðum aðferðum og gervigreind.

20+ árí rekstri og stjórnun
4 sviðein heildstæð nálgun

Þjónusta

Fjögur svið — eitt markmið: að fjarlægja flöskuhálsana sem hægja á rekstrinum.

Stjórnun & stefnumótun

Skipulag, ferlar og árangursmælikvarðar sem gera stjórnendum kleift að taka ákvarðanir út frá gögnum — ekki tilfinningu.

Upplýsingatækni

Kerfisval og innleiðing — ERP, WMS og gervigreind. Tæknin á að þjóna rekstrinum, ekki öfugt.

Vörustýring

Birgðastýring, innkaupa- og eftirspurnarspár. Rétt vara, á réttum stað, á réttum tíma — lágmarka fébindingu í birgðum.

Vöruhús & dreifing

Hönnun vöruhúsa, vöruflæði og dreifileiðir. Hver fermetri og hver kílómetri á að skila sér í betri þjónustu og lágmörkun kostnaðar.

Aðferðin

Engar skýrslur sem enda ofan í skúffu.

01

Greining

Staðan tekin eins og hún er — gögn úr rekstrinum, ekki ágiskanir. Flöskuhálsar greindir, farið yfir ferla og vinnulag.

02

Lausn

Aðgerðir forgangsraðaðar og kostnaðargreindar, farið yfir hverju þær skila. Unnið náið með stjórnendum og starfsfólki á gólfi.

03

Innleiðing

Við fylgjum breytingunum eftir á gólfinu með þínu fólki — þar til nýja verklagið er orðið að vana.

„Ég hef stýrt rekstri þar sem hvert prósent í hagræðingu taldi í milljónum króna. Þá reynslu nota ég fyrir þitt fyrirtæki — óháð stærð."

Hafsteinn Ingibjörnsson stofnaði flytr eftir feril sem framkvæmdastjóri rekstrar (COO) hjá einu stærsta heildsölufyrirtæki landsins.

flytr sameinar þá reynslu og nýjustu tækni — þar á meðal gervigreind — til að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að reka sig betur: hraðar, með minni kostnaði og fyrirhöfn.

Fyrsta samtalið kostar ekkert.

Bókaðu 90 mínútna greiningarfund og við förum saman yfir stöðuna.

hafsteinni@mac.com